Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
17. febrúar 2012

Vika 7

 Í dag var stelpukaffi. Við fengum mjög margar mömmur, ömmur, systur og frænkur í heimsókn. Boðið var upp á ristað brauð og morgunbollur með kaffi og tilheyrandi. Mjög skemmtilegur morgun og við þökkum öllum sem komu.

Við höfum brallað ýmislegt í vikunni, föndrað bolluvendi, bakað í vísindum og notið þess að vera úti og inni að leika.

 

Í næstu viku stendur mikið til, á mánudaginn er bolludagur, sprengidagur á þriðjudegi og svo öskudagur á miðvikudegi. Á öskudaginn geta þeir sem vilja komið í búning í leikskólann. Við höldum ball og sláum köttinn úr tunnunni.

 

Vonum að þið eigið góða helgi.

Hlökkum til skemmtilegrar og viðburðaríkrar viku.

meira...
14. febrúar 2012

Stelpukaffi

 Á föstudaginn, 17. febrúar höldum við árlegt stelpukaffi í tilefni konudagsins sem er sunnudaginn 19. febrúar. Að venju bjóða börnin mömmum, ömmum, systrum og frænkum í heimsókn í morgunkaffi sem stendur frá 8.00 til 9.30. Við vonumst til að sjá sem flestar stelpur þennan dag.

 

Miðvikudaginn 15. febrúar fer seinasti Fálkahópurinn í skólaheimsókn í bili. Heimsóknirnar hefjast aftur 14. mars.

meira...
14. febrúar 2012

Vika 6

 Í síðustu viku héldum við hátíðlegan Dag leikskólans. Af þessu tilefni vorum við með vatnsdag. Boðið var upp á tilraunir og leik með vatni í hinum ýmsu myndum og litum. Það skemmtu sér allir vel, en margir fóru heim með blaut föt í poka í tilefni dagsins.

 

Í vikunni var einnig vasaljósadagur, þar sem börnin lýstu upp umhverfið með vasaljósum, mikið fjör var og ýmsir möguleikar ljóssins skoðaðir.

meira...
25. janúar 2012

Þorrablót.

Þriðjudaginn 24. janúar héldum við Þorrablót með pomp og pragt á leikskólanum.  Börnin voru búin að gera hjálma og sungnir voru þorrasöngvar.  Í hádeginu borðuðum við öll saman í salnum.  Í boði var grjónagrautur og slátur auk þess fengum við flatkökur, hangikjöt, hvalrengi, hákarl, sviðasultu, svínasultu, síld og margt fleira.  Flestir voru duglegir að smakka þó að sumt hafi ekki farið lengra en það. 

Endilega kíkið á myndir.

meira...
18. janúar 2012

Bóndadagur

Föstudaginn 20. janúar nk. er BÓNDADAGUR þá er hefð í Uglukletti að börnin bjóði pöbbum, öfum, bræðrum og frændum í morgunkaffi frá 8.30 til 10.00. Við vonumst til þess að sjá sem flesta. 

meira...
6. janúar 2012

Framlag foreldra

Í vikunni bauð Hrafnhildur mamma, Valborgar börnunum að koma í garðinn hjá sér og fá kakó og piparkökur. Í desember kom Ragnhildur mamma Margrétar til okkar með sveitakynningu. Það er mjög ánægjulegt fyrir alla í leikskólanum að fá svona framlag frá foreldrum. Við þökkum kærlega fyrir okkur og minnum á að allar góðar hugmyndir frá foreldrum eru velkomnar. Myndir frá viðburðunum er komnar inn.

 

Vikan er búin að vera viðburðarík, á dótadaginn var mikið fjör, Dröfn sá um að dansa og syngja álfasöngva í tónlistinni á miðvikudaginn og sökum hálku tókum við þann kost að vera inni fyrir hádegi á föstudag og horfa á mynd í salnum. Fórum svo út í snjóinn eftir mat.

 

Óskum öllum góðrar helgar.

 

Von er á fleiri myndum eftir helgi, álfarnir komnir í tölvukerfið...

meira...
30. desember 2011

Áramótakveðja

 

Áramótakveðja

 

Við sendum öllum okkar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir liðið.

 

Við hlökkum til að takast á við ný verkefni á komandi ári með leik, virðingu og gleði að leiðarljósi.

 

 

 

 

meira...
23. desember 2011

Jólakveðja frá Uglukletti

 

Jólakveðja

 

Óskum öllum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem best næstu daga.

 

Jólakveðja frá öllum í

Uglukletti

meira...
Stelpukaffi 2012