Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

 

Leikskólinn Ugluklettur

 

Leikur- virðing- gleði

 

Leikskólinn Ugluklettur, sem stendur við Ugluklett í Borgarnesi, tók til starfa haustið 2007. Í leikskólanum eru um það bil 65 börn á þremur deildum og stendur skólinn í útjaðri bæjarins þar sem villtur gróður og náttúran eru við garðhliðið.  Nöfnin á rýmum leikskólans eru sótt í örnefni héraðsins, til að mynda heita deildirnar eftir fjöllunum Skessuhorni, Baulu og Grábrók.  Önnur rými skólans hafa einnig hlotið nöfn sem tengjast náttúrunni í kringum okkur.

Ugluklettur starfar eftir lögum um leikskóla frá 2008 og Aðalnámskrá leikskóla frá 1999.  Þessu til viðbótar höfum við þróað með okkur sýn sem kallast ,,FLÆÐI” og byggja þær hugmyndir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, en einnig höfum við stuðst við hugmyndir Gardners um fjölgreindirnar.

 

 

Þróun starfsins

Þróun starfsins í Uglukletti hefur staðið frá því að leikskólinn tók til starfa en nú hefur ákveðin stefna verið mótuð.  Haustið 2008 var byrjað að vinna með flæði, en flæði er það ástand þar sem einstaklingurinn er svo niðursokkinn í athöfn að ekkert annað kemst að. Reynslan sjálf er svo gefandi að einstaklingurinn leggur mikið á sig til að öðlast slíka reynslu aftur. Í flæði er mikilvægt að skapa ástand þar sem geta einstaklingsins og kröfur til hans eru í jafnvægi, verkefnin mega hvorki vera of erfið né of létt. Þegar jafnvægi er á milli þessara þátta verður einbeitingin algjör og athöfnin er knúin áfram af innri þörf og vilja. Þannig verður flæðiástandið sem lærdómsríkast og einstaklingurinn nýtur þess. Það er samhengi milli þess hvernig börnin í leikskólanum og starfsfólkið upplifir flæði. Starfsfólk leikskólans spilar stórt hlutverk í því að skapa aðstæður og möguleika fyrir börnin til þess að ná flæði. Starfsfólkið þarf að vera þátttakendur í því að gefa athöfnunum gildi með því að vera meðvitað um að einbeita sér og veita athöfnum barnsins athygli.

            Í leikskólanum birtist flæðið í því að áhugi barnsins er fangaður, barnið ljómar þannig að vel sést að athöfn þess hefur þýðingu og athygli barnsins er algjör, það verður engin truflun og utanaðakomandi þættir hafa engin áhrif á barnið. Starfsfólk leikskólans spilar stórt hlutverk í því að skapa aðstæður og möguleika fyrir börnin til þess að ná flæði. Starfsfólkið þarf að vera þátttakendur í því að gefa athöfnunum gildi með því að vera meðvitað um að einbeita sér og veita athöfnum barnsins athygli.

            Í Uglukletti er hugað að þeim fjórum þáttum sem verða að vera til staðar svo að flæði skapist. Samspil virðingar og flæðis felst í að starfsfólk sýnir hlýju og góða nærveru, það er grunnur að félagsfærni, frumkvæði, jákvæðum samskiptum og einbeitingu. Traust og gott samband, sameiginleg markmið í verkefnum og athöfnum eru einnig partur af samspili virðingar og flæðis, sem og að starfsfólk sé næmt á þarfir hvers barns fyrir sig og hvers einstaklingarnir þarfnist til þess að þroskast og dafna.

            Umhverfi og flæði er annar þáttur í sköpun flæðis í leikskólanum. Notalegheit og fagurfræði þurfa að vera til staðar, spennandi möguleikar sem þróa öll skynfæri barnanna og sveigjanlegt umhverfi þar sem hægt er að stunda mismunandi athafnir án þess að börnin truflist hvert af öðru, hvort sem er í litlum eða stórum hópum.

            Skipulagning, uppbygging og flæði, skipulag dagsins þarf að einkennast af samvinnu og því að allir séu meðvitaðir um hlutverk sitt. Jafnvægi þarf að vera á milli fullorðinsstýrðra athafna og frjáls leiks, og einnig þess að grípa tækifærin og skipuleggja fyrirfram.

            Efniviður og flæði, kjarninn í flæðinu er athygli og ákefð barnanna en gæði og úrval efniviðs er einnig forsenda flæðis og það að starfsfólk sé til staðar, sýni efniviðnum áhuga og sé opið fyrir ólíkum notkunarmöguleikum hans.

Í þeim tilgangi að auðga nám barnanna er skólanum skipt upp í stöðvar sem starfsfólk  hefur umsjón með og geta börnin þannig valið sér viðfangsefni eftir áhuga sínum hverju sinni.  Stöðvarnar sem eru í boði í leikskólanum eru listakrókur, hreyfisalur, málrækt, vísindi, textíll, einingakubbar, heimiliskrókur og gönguferðir. Á stöðvunum eru fastir starfsmenn sem halda utan um starfið á svæðinu, skipuleggja verkefni og sjá um skráningu. Skráningin heldur utan um hvaða börn koma á hvert svæði, hvaða viðfangsefni er unnið með og hvernig vinnan gekk. Utan svæðanna hafa börnin aðgang að þeim leikefnum sem leikskólinn býr yfir og geta þannig leitað í þann efnivið sem þau vilja.

Flæði barnanna er óháð deildum en yngstu börnin taka þátt í flæðinu í fylgd starfsfólks, þannig er tillit tekið til aldurs og þroska barnanna. Efniviður leikskólans er opinn og gefur ekki lausnir fyrirfram, umhverfið er skipulagt þannig að börnin eigi gott með að nálgast þann efnivið sem þeim stendur hugur til hverju sinni.

 

 

Einkunnarorðin okkar og tengsl við flæðið

Einkunnarorð leikskólans eru leikur, virðing og gleði í samræmi við þau er markmiðið með flæðinu að ná fram mikilvægi leiksins og að gefa börnunum tíma til þess að þróa hann styðja við og efla frjálsan leik barnanna, bera virðingu fyrir fjölbreytileikanum innan barnahópsins og stuðla að gleði og frjálsræði í starfinu öllu.

Í Uglukletti ríkir sú trú að leikurinn sé aðal námstæki barnanna og að í gegnum hann aukist sjálfstæði þeirra og að þau fái tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri í gegnum hann.  Þessi trú er í samræmi við  Aðalnámsskrá leikskóla (1999) en þar kemur fram að leikurinn sé mikilvægasta þroska og tjáningarleið barna.

Flæðið gefur börnunum tækifæri til þess að finna viðfangsefni án utanaðkomandi stýringar og velja því eftir áhuga sínum hverju sinni.  Virðing er borin fyrir þeim fjölbreytileika sem ríkir í barnahópnum og börnin læra að stjórna eigin athöfnum og að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.  Virðing er borin fyrir tíma foreldra og barna og gefur dagskipulag Uglukletts foreldrum mikið svigrúm til að njóta hverrar stundar með barninu sínu.

Gleðin er mikilvægur þáttur í námi barna og með flæði næst fram jákvætt andrúmsloft þar sem hver og einn fær tækifæri til þess að vinna að sínum verkefnum.  Með gleði og vellíðan að leiðarljósi verður nám barnanna jákvæð upplifun.

 

Hvernig gengur dagurinn fyrir sig

Í Uglukletti hefur flæðið reynst vel, börnin blómstra, þátttaka kennara er mikil og þeir bera mikla ábyrgð á því að nám fari fram hjá börnunum. Skipulag leikskólans hefur tekið mið af flæðinu og með breytingum og tilfærslum hefur skapast meira rými fyrir leiki barnanna. Dagurinn gengur vel fyrir sig, lítið er um árekstra og börnum og starfsfólki líður vel.

Flæðið hefst um leið og börnin koma í leikskólann en þá finna þau sér viðfangsefni.  Þeim stendur svo til boða að fá sér morgunmat þegar þeim hentar á bilinu kl 8.15 til 9.00.  Börnin geta svo haldið áfram með sín verkefni eða fundið sér ný og er flæðið ríkjandi úti og inni fram að hádegismat. Eftir hádegismat tekur við róleg stund á öllum deildum og að því loknu áframhaldandi flæði, bæði úti og inni. Í kaffitímanum býðst börnunum að setjast til borðs á bilinu 14.30 - 15.00 og fá sér næringu. Eftir að hafa borðað geta þau svo snúið aftur til þeirra verkefna sem þau voru að vinna. Verkefni barnanna á kubbasvæðum fá að standa á milli daga og jafnvel lengur ef byggingin þróast og breytist í vinnu barnanna. Einnig er oft tækifæri til þess að geyma önnur verkefni og koma að þeim aftur þegar áhugi kviknar á ný.