Enn ein vikan á enda og þessa vikuna hefur veðrið leikið við okkur J, börnin njóta þess að hlaupa út á strigaskónum og peisunni. Hamrarnir og naglarnir voru teknir fram og mundaðir í útiverunni. Við keyptum kartöflur, og ýmis grænmetisfræ, erum að koma þeim til og ætlum að stinga þeim út í garð í byrjun júní. Tvö ný börn komu í aðlögun á skessuhorni, þau María Sól og Adam Jörri, bjóðum við þau hjartanlega velkomin til okkar. Við höfum verið að mála blóm í tilefni Mæðradagsins á sunnudaginn. Baula fór í göngutúr á fimmtudaginn og gekk niður á Klettaborg og heilsaði upp á börnin þar.
Á miðvikudaginn í næstu viku, þann 11 maí kemur Latibær í heimsókn og ætlar að taka nokkur spor fyrir okkur.
Í vetur sóttum við um úr Yrkjusjóði og í vikunni fengum við jákvætt svar, fáum við 67 birkiplöntur sem við ætlum í sameiningu að gróðursetja hér einhverstaðar í kringum leikskólann.
Foreldrafélagið ætlar að bjóða okkur í sveitaferð mánudaginn 16. maí. Lagt verður af stað með rútum frá leikskólanum kl 9.00 og haldið að Leirulæk, ætlunin er að borða nesti í Ensku-húsunum og koma aftur í leikskólann ca. klukkan 12.00. Foreldrar eru boðnir hjartanlega velkomnir með en eins og fyrri ár verður tekið lágmarks gjald fyrir þá í rútuna.
Af starfsmannamálum er það að frétta að Elín Friðriksdóttir kom til baka eftir árs fæðingarorlof. Monika hætti og er farinn til fyrri starfa í grunnskólanum. Ingunn Alexandersdóttir verður áfram í veikindafríi a.m.k. fram að áramótum. Vidda fór í aðgerð á hendi og verður í veikindafríi næstu tvær vikurnar.
Njótið helgarinnar.
Endilega kíkið á myndir.