Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
20. maí 2011 13:23

Vika 20

Hér verður ekki rætt meira um veðrið...

Vikan byrjaði á sveitaferð sem foreldrafélagið stóð fyrir og var í alla staði frábær.  Eftir ferðina ákváðum við að færa fiskana af skilrúminu við listakrókinn og útbúa húsdýravegg.  Þar er hægt að sjá hin ýmsu húsdýr, bæi og búalið.    

Á þriðjudaginn byrjuðu Fálkarnir á því að mæta í tómstundarskólann við grunnskólann þar sem þau eru með útskriftarbörnunum á Klettaborg og eru í hinum ýmsu verkefnum, t.d fara þau í sund og íþróttir með íþróttakennurum við grunnskólann og í heimsókn á bókasafnið í skólanum.  Næsta vika verður með sama sniði hjá þeim.

Við hin sem eftir erum í Uglukletti höfum notið þess að meira pláss er í skólanum á morgnana (fálkarnir koma aftur 11.30) og hefur margt verið brallað. 

Sæunn Ósk er komin í fæðingarorlof og Ágústa Óskarsdóttir sem er að útskrifast sem leikskólakennari byrjaði hjá okkur á mánudaginn og bjóðum við hana velkomna til okkar. 

Við viljum minna á að þriðjudaginn 7 júní ætla börnin að bjóða ömmum og öfum í morgunkaffi og njóta þess að vera með okkur .

 

Góða helgi.

 

Stelpukaffi 2012