Í gær þriðjudag var formleg útskrift árgangs 2005 í Ugukletti. Fóru þá útskriftarbörnin með foreldrum sínum og kennurum með rútu upp að Grábrók og gengu þar upp og leystu verkefni. Eftir það var farið niður að Paradísarlaut og í leiðinni þar niður var ratleikur sem börnin ásamt foreldrum leystu með stæl. Í paradísarlaut fékk svo hópurinn kaffi, brauð og djús. Því næst var ekið til baka að Ugukletti þar sem ömmur, afar og aðrir ættingjar voru komnir til að vera viðstaddir formlega útskrift.
Yndislegur dagur í alla staði. Endilega kíkið á myndir.