Í gær kom Bjarni Þorsteinsson í heimsókn til Fálkanna. Hann fræddi þau um eldvarnir, mikilvægi reykskynjara, eldvarnarteppis og slökkvitækis. Börnin fengu verkefnabók og viðurkenningu í lok kynningar, klæddu sig út í kuldann og skoðuðu bíl slökkviliðsins. Við gerum ráð fyrir að börnin hafi farið yfir öryggi heimilisins í kjölfarið af heimsókninni og að allir séu nú vel búnir undir komandi hátið ljóss og friðar í þessum efnum.
Myndir eru komnar inn á síðuna.