Í gær voru litlu jólin í leikskólanum. Börnin á Grábrók buðu öllum í leikskólanum að sjá sýninguna Dimmalimm um morguninn, síðan fengu allir ljómandi góðan hádegisverð og eftirrétt.
Eftir hádegið komu aðstandendur barnanna á Grábrók á sýningu hjá börnunum og í beinu framhaldi var svo jólaball skólans þar sem fjölmargir foreldrar, afar og ömmur og systkin létu sjá sig. Margir tóku þátt í að ganga í kringum jólatréð og jólasveinar komu á svæðið.
Vikan er búin að vera mjög viðburðarík og skemmtileg en nú líður að jólum og við reynum að taka því rólega í næstu viku og dunda okkur við eitt og annað.
Töluvert magn af myndum er nú komið inn á síðuna.